Föstudaginn 4. nóvember fóru nemendur úr inngangsáfanga að náttúruvísindum frá Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu í ferð til að mæla Heinabergsjökul. Með í ferðinni voru kennarar ásamt Kristínu Hermannsdóttur og Snævari Guðmundssyni frá Náttúrustofu Suðausturlands og Helgu Árnadóttur frá Vatnajökulsþjóðgarði. Hópurinn lagði af stað klukkan 8:00 og var keyrt upp að Heinabergsjökli. Veður var ágætt en nokkur vindur var fyrri hlutann. Nemendunum var fyrir ferðina skipt í hópa sem hver hafði sitt hlutverk. Stórt lón er fyrir framan jökulröndina og því er ekki hægt að notast við hefðbundnar mæliaðferðir heldur eru notaðar þríhyrningamælingar þar sem ákveðnar lengdir og horn eru mæld. Til þess nota nemendur svokallaðan latta sem er mælistöng sem hægt er að lengja í fimm metra, málbönd og byggingakíki.
Að þessu sinni var líka með í för dróni sem Náttúrustofan og FAS eiga saman og var nýlega keyptur. Hann var setur á loft eins mikið og hægt var en vegna vinds var það lítið hægt. Þegar hann fór á loft náði hann ágætum loftmyndum sem gáfu nýtt sjónarhorn á jökulinn. Dróninn getur bæði tekið ljósmyndir og mynband. Hér má sjá stutt myndband af jöklinum en það voru nemendur FAS sem klipptu myndbandið saman.
Framhaldsskólinn hefur í 16 ár farið og mælt Heinabergsjökul. Alltaf er mælt frá nákvæmlega sömu stöðum og notaðar sömu aðferðir. Vinna nemenda er þó ekki búin eftir ferðina að jöklinum. Það þarf að vinna úr upplýsingum sem er safnað á vettvangi og bera saman við upplýsingar frá fyrri árum og reyna þannig að fá raunsæja mynd af breytingu jökulsins. Samkvæmt útreikningum hefur jökullinn hopað norðantil en gengið lítillega fram sunnan megin. Niðurstöðurnar eru þó ekki alveg réttar, en nýlegar loftmyndir sýna að það sem haldið var að væri jökulsporðurinn norðan megin eru í rauninni ísjakar sem hafa brotnað frá jöklinum eins og sést á meðfylgjandi gervihnattamynd. Það þarf því að leita nýrra leiða til að fá réttari mynd af stöðu jökulsins á næsta ári.
Við þökkum þeim Helgu frá Vatnajökulsþjóðgarði og Kristínu og Snævari frá Náttúrustofunni fyrir aðstoðina og samveruna við mælingarnar í ár. Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir úr ferðinni.
[modula id=“9732″]